Velkomin á heimasíðu félags stjórnsýslufræðinga
Aðalfundur 29. maí kl. 16:30Aðalfundur félagsins verður haldinn 29. maí kl. 16:30 í Odda, stofu 101. Eins og fram kemur í síðustu fundargerð stjórnar, gefa fjórir af fimm stjórnarmönnum kost á sér í stjórn áfram. Einn aðalmaður í stjórninni hefur einnig óskað eftir að taka sæti varamanns. Því óskum við eftir áhugasömum félagsmönnum til þess að gefa kost á sér í stjórn eða tilnefningum um aðra félagsmenn. Með hliðsjón af kynjajafnvægi meðal aðalmanna í stjórn væri gaman að heyra í konum eða fá tilnefningar í þá veru. Áhugasamir mættu gjarnan hafa samband við formann í s. 693 9330 eða með því að senda línu til Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. F.h. stjórnar, Eggert Ólafsson, formaður.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 14. maí 2012 16:13 ) Vel heppnaður fundurFundurinn um áhrif tillagna stjórnlagaráðs á stjórnsýslu og stjórnskipan var vel sóttur og vel heppnaður. Um 35 manns sóttu fundinn og stór hluti þeirra sat áfram og tók þátt í áhugaverðum umræðum sem stóðu til klukkan korter í tvö. Menn voru almennt sammála um að tillögurnar gætu haft veruleg áhrif á stjórnsýsluna, einkum sá hluti þeirra sem snýr að upplýsingaskyldu stjórnvalda. |



